Hótel Langaholt býður nú um páskana upp á tvær göngur á Snæfellsjökul. Kvöldverður og gisting með morgunverði er innifalin í verðinu. Stefnt er á göngu á Skírdag (2. apríl) og laugardaginn 4. apríl. Það eru fáar fjallaupplifanir á Íslandi sem jafnast á við það að koma á efstu brúnir Snæfellsjökuls í góðu skyggni og horfa yfir Breiðafjörð og Faxaflóa, líta niður á Snæfellsjökulsþjóðgarð, að sjá skuggavarp jökulsins yfir hafinu og horfa til austurs eftir tindaröð Snæfellsness og inn að miðhálendinu.
Ganga á Snæfellsjökul tekur 6-9 klukkustundir og búast má við allt að 1000 m hækkun og 12 km göngu. Við hittumst 8:30 í Langaholti og verðum samferða þaðan upp á Jökulhálsveg. Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagsetningum með hliðsjón af veðurspám með nokkurra daga fyrirvara. Sendur verður póstur með nánari upplýsingum stuttu fyrir göngu og ennfremur boðið upp á fjarfund.
Þáttakendur þurfa að vera í sæmilegu gönguformi og hafa með sér góðan vetrarbúnað. Í þessari göngu verður gengið í jöklalínu og þurfa þátttakendur auk hefðbundins fjallgöngubúnaðar að koma með jöklabrodda, ísexi, göngubelti og læsta karabínu. Hægt er að leigja búnaðinn í flestum útivistarverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Gangan er samstarfsverkefni með Tindum Snæfellsness og fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
(Lágmarksfjöldi fyrir gönguhóp er 8 manns)
Umsjónarmaður gönguferðanna okkar er Guðmundur Rúnar Svansson frá Dalsmynni. Guðmundur var áður landvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hann er undanfari hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og hefur lokið fagnámskeiðum Björgunarskólans í fjallamennsku, fjallabjörgun, snjóflóðum og vettvangshjálp í óbyggðum. Hann hefur margra ára reynslu af gönguleiðsögn.
Guðmundur ólst upp við búskap og sveitastörf á Snæfellsnesi og skilaði sér að lokum til baka eftir lausamennsku á höfuðborgarsvæðinu um stundarsakir. Guðmundur er af snæfellsku hálftröllakyni og náfrændi Bárðar Snæfellsáss. Sakir ættirnisins sækir hann mikið í að ganga einsamall um tinda Snæfellsness, og segir fátt af einum. Þá er hann grunaður um að vera kominn af galdrafólki í marga ættliði.
Skírdagur 2.apríl og Laugardagur 4.apríl Páskaganga á Snæfellsjökul.
Dagsganga með leiðsögumanni, kvöldverði og gistingu í tveggja manna Comfort herbergi með morgunverði
Verð fyrir tvo 79.900 kr. = 39.950 kr. á manninn miðað við gistingu í tveggja manna herbergi
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Við bjóðum líka verð í einstaklingsherbergi þegar hægt er að koma því við og velkomið að hafa samband í tölvupósti
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is

