Hótel Langaholt býður þann 21. mars næstkomandi upp á vetrarfjallgöngu með kvöldverði og gistingu með morgunverði. Gengið verður á Ljósufjöll á Snæfellsnesi og er fararstjórinn heimamaður.
Hin litskrúðugu Ljósufjöll (1063 m.y.s.) eru hæstu tindar Snæfellsness þegar jökullinn er undanskilinn, og dregur Ljósufjallaeldstöðin, sem nær frá Berserkjahrauni að Grábrók, nafn sitt af fjöllunum. Fer það jafnan eftir veðri og snjóaðstæðum á hvaða leið er farin og á hvaða tind eða tinda er gengið.
Gangan hefst 8:30 á sunnanverðu nesinu og má búast við um 100 mínútna akstri frá höfuðborgarsvæðinu. Gengið er upp með Kleifá framhjá Valafossi, og síðar fylgt öðrum hvorum flögubergshryggnum upp að fjallsrótunum. Búast má við 14-16 km göngu og 1100 m hækkun. Póstur verður sendur á þátttakendur með nánari upplýsingum fyrir göngu um upphafsstað og búnað.
Í þessari göngu er nauðsynlegt að hafa með jöklabrodda og ísexi, sem og annan viðeigandi útbúnað fyrir vetrarfjallgöngur. Gangan er samstarfsverkefni með Tindum Snæfellsness og fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Að lokinni göngu verður sameiginlegt borðhald á Langaholti.
(Lágmarksfjöldi fyrir gönguhóp er 8 manns)
Umsjónarmaður gönguferðanna okkar er Guðmundur Rúnar Svansson frá Dalsmynni. Guðmundur var áður landvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hann er undanfari hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og hefur lokið fagnámskeiðum Björgunarskólans í fjallamennsku, fjallabjörgun, snjóflóðum og vettvangshjálp í óbyggðum. Hann hefur margra ára reynslu af gönguleiðsögn.
Guðmundur ólst upp við búskap og sveitastörf á Snæfellsnesi og skilaði sér að lokum til baka eftir lausamennsku á höfuðborgarsvæðinu um stundarsakir. Guðmundur er af snæfellsku hálftröllakyni og náfrændi Bárðar Snæfellsáss. Sakir ættirnisins sækir hann mikið í að ganga einsamall um tinda Snæfellsness, og segir fátt af einum. Þá er hann grunaður um að vera kominn af galdrafólki í marga ættliði.
AFLÝST VEGNA VEÐURS
Dagsganga með leiðsögumanni, kvöldverði og gistingu í tveggja manna Comfort herbergi með morgunverði
Verð fyrir tvo 69.800 kr. = 34.900 kr. á manninn miðað við gistingu í tveggja manna herbergi
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Við bjóðum líka verð í einstaklingsherbergi þegar hægt er að koma því við og velkomið að hafa samband í tölvupósti
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is

