Hótel Langaholt býður þann 23.maí næstkomandi upp á dagsgöngu með kvöldverði og gistingu með morgunverði. Gengið er í ysta hluta Snæfellsjökulsþjóðgarðs með fararstjóra sem jafnframt er fyrrverandi landvörður í þjóðgarðinum. Áhersla er lögð á fræðslu og skoðun fornminja sem eru utan alfaraleiða og fjölmennustu viðkomustaða ferðamanna. Um er að ræða létta göngu með lítilli hækkun sem hentar göngufæru fólki á öllum aldri.
Dagurinn hefst á því að mæting er í Langaholti um 9 um morguninn þar sem dagurinn byrjar á stuttu kaffi og samtali um daginn, en meðal annars þarf að skipuleggja bílferðir. Frá Langaholti verður hópurinn samferða á upphafsstað göngu, en lagt er upp með að ganga hring á Öndverðarnesi, yst á Snæfellsnesi.
Göngusvæðið afmarkast af Skarðsvík, Öndverðarneshólum og Skálasnagavita. Mikið er af minjum á svæðinu og sjávarsíðan stórbrotin. Nesgatan sem liggur gegnum hraunið er ein af skemmtilegri hraungötum á landinu.
Búast má við 13-16km göngu með lítilli hækkun, og 7-8 tímum af útivist.
Gangan er samstarfsverkefni með Tindum Snæfellsness og fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Umsjónarmaður gönguferðanna okkar er Guðmundur Rúnar Svansson frá Dalsmynni. Guðmundur var áður landvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hann er undanfari hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og hefur lokið fagnámskeiðum Björgunarskólans í fjallamennsku, fjallabjörgun, snjóflóðum og vettvangshjálp í óbyggðum. Hann hefur margra ára reynslu af gönguleiðsögn.
Guðmundur ólst upp við búskap og sveitastörf á Snæfellsnesi og skilaði sér að lokum til baka eftir lausamennsku á höfuðborgarsvæðinu um stundarsakir. Guðmundur er af snæfellsku hálftröllakyni og náfrændi Bárðar Snæfellsáss. Sakir ættirnisins sækir hann mikið í að ganga einsamall um tinda Snæfellsness, og segir fátt af einum. Þá er hann grunaður um að vera kominn af galdrafólki í marga ættliði.
Dagsganga með leiðsögumanni, kvöldverði og gistingu í tveggja manna Comfort herbergi með morgunverði.
Verð fyrir tvo 69.800 kr. = 34.900 kr. á manninn miðað við gistingu í tveggja manna herbergi
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Við bjóðum líka verð í einstaklingsherbergi þegar hægt er að koma því við og velkomið að hafa samband í tölvupósti
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is

