Hafa samband
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is
Engin fyrirframgreiðsla nauðsynleg – greitt er á gististað.
Kortagreiðslur
Það er stefna Langaholts að taka einungis við kreditkortagreiðslum að eigendum korta viðstöddum, auk þess skal greiðandi sanna með óyggjandi hætti að hann sé eigandi kortsins sem tekið er útaf.
Í þeim tilfellum er víkja þarf frá þessari reglu og taka við símgreiðslu af þriðja aðila er þess krafist að gestur framvísi skilríkjum við komu ásamt eigin kreditkortaupplýsingum.
Ofangreindar öryggisráðstafanir eru gerðar til að tryggja öryggi korthafa sem og allra viðkomandi aðila. Afriti af skilríkjum gesta ásamt kortaupplýsingum er einungis haldið eftir hjá Langholti um stundarsakir eða þar til tryggt er að eigi þurfi að bregðast hafi úttekt af áður uppgefnu greiðslukorti verið mótmælt af eiganda þess.
Afbókanir:
Afbókun fyrir einstaklingsbókanir er gjaldfrjáls þar til 48 tímum fyrir komu. Sé afbókað innan 48 tíma fyrir komu er andvirði bókunar innheimt að fullu. Sama á við ef gestur mætir ekki „No Show“.
Skilmálar:
Ef áætlaður komutími er utan opnunartíma móttökunnar eru gestir vinsamlegast beðnir um að láta gististaðinn vita fyrirfram, eða skrá áætlaðan komutíma í séróskir við bókun.
Þegar þrjú herbergi eða fleiri eru bókuð geta aðrir bókunarskilmálar átt við. Í þeim tilfellum skal hafa samband við gististaðinn beint í tölvupósti hjá langaholt@langaholt.is
Aukarúm til viðbótar þeim sem fyrir eru á herbergjum, eru ekki í boði á þessum gististað.
Börn 7 ára og eldri borga fullt gjald líkt og fullorðnir. Frítt er fyrir börn 0-6 ára deili þau rúmi með foreldrum.
Mögulegt er að fá barnarúm í herbergi fyrir 0-2 ára börn, án endurgjalds – vinsamlega bókið fyrirfram.
Sérstakar beiðnir skulu ávallt berast tímanlega. Ekki er hægt að tryggja að mögulegt sé að verða við sérstökum beiðnum gesta sem óskað er við innritun t.d. vegna herbergjaframboðs o.s.frv. Úrlausnum slíkra beiðna kunna að fylgja auka gjöld.
Reykingar eru ekki leyfðar í Gistihúsinu Langaholti. Verði gestur uppvís að reykingum innanhúss áskilur gististaður sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald fyrir.
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is