Við hjá Hótel Langaholti á Snæfellsnesi bjóðum fyrirtækjum frábær tilboð í gistingu og gómsætan mat í eina eða tvær nætur.
Tveggja manna Comfort herbergi með morgunverði ásamt kvöldverðarhlaðborði fyrir tvo að hætti hússins.
Hlaðborð Langaholts samanstendur af eftirtöldu: Tveimur tegundum af súpu, bláskel (háð árstíðum), fiski í þremur útgáfum, tvennskonar kjötréttum, góðu úrvali af meðlæti og eftirrétti að hætti kokksins.
Ein nótt með kvöldverði frá 43.600 kr. fyrir parið.
Tvær nætur með kvöldverðum frá 73.200 kr. fyrir parið.
(Aðeins 21.800 kr. á mann miðað við eina nótt )*
(Aðeins 36.600 kr. á mann miðað við tvær nætur)*
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Tilboðsverð gildir á tímabilinu 1. október til 30. apríl.
Morgunverður er innifalinn í tilboðsverði.
Kvöldverðarhlaðborðin okkar eru afgreidd frá kl 18:30-20:30 að vetri.
Innskráning er kl 16:00 og útskráning kl 11:00.
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Tilboðsgerð er best unnin í samvinnu eða eftir óskum og samsetningu hvers hóps, enda valmöguleikarnir margir.
Vinsamlega setjið í skilaboð mögulegar dagsetningar eða tímabil, stærð hóps, ein nótt eða tvær.
Fyrir frekari fyrirspurnir og tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is