Golfhermir Golfklúbbs Staðarsveitar er í glæsilegu nýstandsettu húsnæði í aðeins um 5 mínútna akstursfjarlægð frá Hótel Langaholti. Verðin á golfherminum eru einingaverð óháð fjölda spilara.
Innifalið í golfhermisverði er þjónusta á staðnum að meðtaldri kennslu í notkun Golfhermis og aðstoð.
Ein til fjórar manneskjur geta spilað í herminun saman hverju sinni eða fjögur lið.
Hægt er að bóka hálfan dag saman á 14.000 kr. eða heilan dag á 24.000 kr.
Með gólfherminum er einnig hægt að bóka tilboðsgistingu, sjá hér að neðan:
Einnar nætur gisting fyrir tvo í Comfort herbergi ásamt kvöldverðarhlaðborði fyrir tvo að hætti hússins.
Hlaðborð Langaholts samanstendur af eftirtöldu: Tveimur tegundum af súpu, bláskel (háð árstíðum), fiski í þremur útgáfum, tvennskonar kjötréttum, góðu úrvali af meðlæti og eftirrétti að hætti kokksins.
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Verð fyrir tvær manneskjur í eina nótt er 38.800 kr.
Endanlegt verð tilboðsins ræðst af vali/samsetningar á golfhermistíma með gistingu og kvöldverði.
Morgunverður er innifalinn.
Innskráning er kl 16:00 og útskráning kl 11:00.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is