Framkvæmdir eru hafnar við að stækka gistihúsið að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi um helming. Fjölgað verður í gistirými um 20 herbergi, stækkað úr 20 í 40 herbergi. Fyrsta skóflustungan að framkvæmdunum var tekin á miðvikudag í síðustu viku. „Já, við erum aðallega að fara að bæta við herbergjum, auka gistirýmið. Þessi 20 nýju herbergi til viðbótar við þau 20 sem eru fyrir verða í húsi samtengdu við gistihúsið sem er fyrir. Nýja byggingin á að verða tilbúin sem fyrst. Ég var að lesa í Skessuhorni að ferðaþjónustan sé orðin aðal bransinn svo það er ekki seinna vænna, sagði Keli vert, Þorkell Símonarson í Langaholti, þegar Skessuhorn náði tali af honum í önnum við að grafa fyrir grunni nýja hússins. „En við áætlum að ná að ljúka þessu fyrir næsta sumar.“
Herbergin í nýju gistiálmunni verða öll tveggja manna með baði. „Það verða öll nútíma þægindi eins og kröfur eru til í ferðaþjónustunni í dag. „Það er gaman að hugsa til þess að elsti hluti gistihússins hér er frá 1985 eða 30 ára. Það var sérbyggt yfir ferðamenn og ekki mörgum sem datt það þá í hug í sveitum landsins að reisa gistihús fyrir ferðamenn. Nú 30 árum síðan er þetta hins vegar orðin þörfin, 40 herbergi í Langaholti. Sumir segja reyndar að við hefðum átt að stækka enn meira við okkur í þessum áfanga. Það er búið að vera vitlaust að gera, mikill ófriður af ferðamönnum,“ segir Keli og hlær dátt. „Sumarið var mjög gott, eins og reyndar síðustu sumur einnig.“
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is