Hótel Langaholt býður þann 9. maí næstkomandi upp á dagsgöngu í láglendi með
kvöldverði og gistingu með morgunverði. Gengið er í syðsta hluta Snæfellsjökulsþjóðgarðs og er fararstjóri göngunnar fyrrverandi landvörður í
þjóðgarðinum. Áhersla er lögð á fræðslu og skoðun fornminja sem eru utan alfaraleiða og stærstu viðkomustaða ferðamanna.
Dagurinn hefst á því að mæting er í Langaholti um 9 um morguninn þar sem dagurinn
byrjar á stuttu kaffi og samtali um daginn, en meðal annars þarf að skipuleggja bílferðir.
Frá Langaholti verður hópurinn samferða á upphafsstað göngu, en hluti bílanna verður skilinn eftir á bílastæðinu við gestastofuna á Malarrifi.
Gangan hefst á því að gamla vermannagatan verður gengin í Dritvík, en það er ómerkt og fáfarin hraungata en þó vel sýnileg í hrauninu. Frá Dritvík verður gengið í námunda við sjávarsíðuna um Djúpalónssand, Einarslón og Þrælavík að Malarrifi, og jafnvel að Lóndröngum og Svalþúfu eftir því hvað tími og veður leyfa.
Búast má við 13-16km göngu með lítilli hækkun, og 7-8 tímum af útivist, en á köflum um
hrjóstug og mishæðótt hraunlandslag sem getur verið þungt á fótinn. Gerð er krafa
góðan útivistarfatnað sem er vind- og vatnsheldur, og gönguskó með góðum ökklastuðningi.
Gangan er samstarfsverkefni með Tindum Snæfellsness og fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Að lokinni göngu verður sameiginlegt borðhald á Langaholti.
(Lágmarksfjöldi fyrir gönguhóp er 8 manns)
Umsjónarmaður gönguferðanna okkar er Guðmundur Rúnar Svansson frá Dalsmynni. Guðmundur var áður landvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hann er undanfari hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og hefur lokið fagnámskeiðum Björgunarskólans í fjallamennsku, fjallabjörgun, snjóflóðum og vettvangshjálp í óbyggðum. Hann hefur margra ára reynslu af gönguleiðsögn.
Guðmundur ólst upp við búskap og sveitastörf á Snæfellsnesi og skilaði sér að lokum til baka eftir lausamennsku á höfuðborgarsvæðinu um stundarsakir. Guðmundur er af snæfellsku hálftröllakyni og náfrændi Bárðar Snæfellsáss. Sakir ættirnisins sækir hann mikið í að ganga einsamall um tinda Snæfellsness, og segir fátt af einum. Þá er hann grunaður um að vera kominn af galdrafólki í marga ættliði.
Dagsganga með leiðsögumanni, kvöldverði og gistingu í tveggja manna Comfort herbergi með morgunverði.
Verð fyrir tvo 69.800 kr. = 34.900 kr. á manninn miðað við gistingu í tveggja manna herbergi
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Við bjóðum líka verð í einstaklingsherbergi þegar hægt er að koma því við og velkomið að hafa samband í tölvupósti
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is

