Þjóðlegur matur samhliða íslenskri gestrisni er blanda sem sjaldan svíkur. Á því var engin undantekning síðastliðið laugardagskvöld þegar árleg bjúgnaveisla var haldin í Langaholti í Staðarsveit. Þemað var bjúgu í sinni víðustu mynd, sem matreidd voru á fjölbreyttan veg. Óskar veitingamaður, Keli vert, Rúna, Sunna Dögg og þeirra starfsfólk höfðu lagt sig í líma við að útbúa veisluborð af „dýrari gerðinni“. Þar mátt fá allt frá soðnum hrossa- og sveitabjúgum til mareneraðra veislurétta, pizzur með slátri og bjúgum, hreindýrabjúgu og alls kyns meðlæti. Í eftirrétt var svo atriði út af fyrir sig þegar Siggi Dalamaður kynnti í fyrsta skipti á heimsvísu tvo nýja Royal búðinga; með mokkabragði og saltkaramellum.
Fullt hús var á samkomunni og skemmtu gestir sér vel. Keli tók lagið og spjallaði við gesti ásamt vini sínum Guðna Má Henningssyni fyrrum útvarpsmanni. Tíðindamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn og það gerðu reyndar fleiri fjölmiðlar einnig því Edda Sif Pálsdóttir var ásamt upptökumanni að gera innslag í Landann. Áhorfendur geta því séð fleira sem fram fór á hátíðinni innan tíðar í þættinum á RUV.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is