Einnar nætur gisting fyrir tvo í Comfort herbergi ásamt kvöldverðarhlaðborði fyrir tvo að hætti hússins. Hlaðborð Langaholts samanstendur af eftirtöldu: Tveimur tegundum af súpu, bláskel (háð árstíðum), fiski í þremur útgáfum, tvennskonar kjötréttum, góðu úrvali af meðlæti og eftirrétti að hætti kokksins.
Matarupplifunin hjá okkur er síbreytileg, það sem er í boði hverju sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum breiðafjarðar og faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna, kjötið til íslenskra bænda og fullvinnum í okkar eldhúsi.
Verð fyrir tvær manneskjur í eina nótt er 40.666 kr.*
ATH! Engin hækkun á verði milli ára!
(*Gistináttarskattur er innifalinn í verðinu).
Vetrarnótt verð gildir á tímabilinu 1. október til 30. apríl.
Morgunverður er innifalinn.
Kvöldverðarhlaðborðin okkar eru afgreidd frá kl 18:30-20:30 að vetri.
Innskráning er kl 16:00 og útskráning kl 11:00.
Ef þú vilt tilboð sniðið að þínum þörfum hafðu þá samband við okkur langaholt@langaholt.is eða fylltu út formið hér að neðan með skilaboðum um þínar óskir.
Langaholt
Görðum Staðarsveit
356 Snæfellsbær
Ísland
Sími: 435 6789
langaholt@langaholt.is